27. maí 2010

0

Glæsileg dagskrá IsNord tónlistarhátíðarinnar 2010

Isnord tónlistarhátíðin verður haldin 11.-13. júní næstkomandi.  Dagskráin verður fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.  Listamennirnir eru úr ýmsum áttum, þó er að vanda lögð áhersla á að draga fram Borgfirskt listalíf í bland við það besta á Íslandi og Norðurlöndunum. 

Tónleikarnir fara fram víðs vegar um Borgarfjörð og miðaverð er 2.000 kr.  Hægt er að panta miða með því að senda póst á isnord@isnord.is