9. maí 2012

0

IsNord 2012

IsNord tónlistarhátíðin verður haldin í áttunda sinn föstudaginn og laugardaginn 8.-9. júní n.k.  
en vert er að vekja sérstaka athygli gesta á því að síðustu tónleikar hátíðarinnar sem yfirleitt eru á sunnudeginum fara fram á sumarsólstöðum, fimmtudaginn 21. júní, en þá mun karlakórinn Söngbræður syngja í Álftanesi á Mýrum lög um sumar og sól.
Hátíðin hefst hins vegar í Reykholtskirkju föstudaginn 8. júní kl. 20.30 með tónleikum Gissurar Páls Gissurarsonar tenórs og Árna Heiðars Karlssonar píanóleikara.   Þeir munu flytja íslensk sönglög úr ýmsum áttum.  Gissur þarf vart að kynna fyrir íslenskum áheyrendum en hann hefur farið á kostum undanfarið  í La Boheme í íslensku óperunni og sem einsöngvari með t.d. Karlakórnum Fóstbræðrum.  Árni hefur bæði bakgrunn í klassík og jazz og hefur m.a. gefið út tvo geisladiska með eigin tónlist.
Á laugardeginum 9. júní kl. 16.00 verða tónleikar í Borgarneskirkju þar sem Jónína Erna Arnardóttir og Morten Fagerli flytja fjórhentar píanóperlur frá Noregi og Íslandi.  M.a. flytja þau norska dansa eftir Grieg og fjórhenta útgáfu af Brennið þið vitar eftir Pál Ísólfsson sem sjaldan heyrist.  Einnig munu þau flytja einleiksverk.  Jónína og Morten námu tónlist við Grieg akademiet í Noregi fyrir fimmtán árum en hafa síðan komið fram á ótal tónleikum en eru nú að spila fjórhent saman í fyrsta sinn.
Aðgangseyrir á tónleikana eru 2.000 kr