Það var sannarlega blóðheitur tangó þegar norska tangóhljómsveitin Tango for tre steig á stokk á Hótel Borgarnesi laugardagskvöldið 14. júní. Ekki var það svo til að minnka stemmninguna þegar Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya tóku tangóspor við tónlist þeirra. Eftir tónleikana stigu svo gestir tangódans.