Glæsilegri hátíð lokið þetta árið. IsNord tónlistarhátíðin hefur aldrei haft jafn marga dagskrárliði, ferna tónleika auk fyrirlesturs. Fróðlegt verður að fylgjast með tenórnum David Danholt í framtíðinni, en þessi ungi Dani á sannarlega framtíðina fyrir sér en hann heillaði Borgfirðinga upp úr skónum ásamt Jónínu Ernu Arnardóttur á tónleikum í Borgarneskirkju.