Baðstofukvöld með Böðvari Guðmundssyni

Böðvar Guðmundsson varð sjötugur á árinu. Hann hefur samið ógrynni af textum og lögum, en auk þess hefur hann líka þýtt talsvert af textum. Böðvar hefur verið ákaflega afkastamikill og fjölhæfur, en verk hans spanna allt frá eldheitum baráttusöngvum upp í óperutexta og trúarlega texta við tónlist J.S. Bachs.
Nánari upplýsingar um Böðvar má nálgast á safnahus.is
Á tónleikunum koma m.a. fram; Kristín Ólafsdóttir, Diddi fiðla, Kammerkór Vesturlands og fleiri.