5. júní 2009

0

Miðaverð og leiðarlýsing í Paradísarlaut

Tónleikagestir í Grábrók árið 2007
Aðgangseyrir á tónleika IsNord eru 1.500 kr. Ókeypis er fyrir 14 ára og yngri.  Hægt er að panta/kaupa miða á tónleikana með því að senda tölvupóst á isnord@isnord.is

Til að komast í Paradísarlaut þá er ekið nærri því að Bifröst (ef komið er frá Borgarnesi), þar er lítið skilti hægra megin við veginn sem á stendur Glanni Paradís, þar er beygt niður.  Bílum þarf að leggja við Golfskálann og þaðan er gengið eftir sléttum malarvegi í 3-5 mínútur þar til komið er í Paradísarlautina.

Mælt er með því að fólk taki með sér nestiskörfu og teppi til að sitja á.