
Isnord tónlistarhátíðin verður haldin 11.-13. júní næstkomandi. Dagskráin verður fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Listamennirnir eru úr ýmsum áttum, þó er að vanda lögð áhersla á að draga fram Borgfirskt listalíf í bland við það besta á Íslandi og Norðurlöndunum.
Tónleikarnir fara fram víðs vegar um Borgarfjörð og miðaverð er 2.000 kr. Hægt er að panta miða með því að senda póst á isnord@isnord.is